Hversu margir teknir til vafasamra gjaldþrotaskipta?

Nú liggur ljóst fyrir að fjölmörg fyrirtæki og heimili hafa verið tekin af fólki til fullnustu lána sem hafa verið dæmd ólögleg - svo er gríðarstór hópur sem hefur ofgreitt af sömu tegund lána.  Frá því að þetta álit er gefið út af opinberri stofnun eins og frá er greint í fréttinni, hefur að minnsta kosti myndast vafi á lögmæti innheimtuaðgerða lánastofnanna.  Þetta er burtséð frá því hvort ráðherrar vilja kannast við þetta eða ekki.  Ég myndi halda að ábyrgð hins opinbera gagnvart þeim sem hafa verið teknir til gjaldþrotaskipta eða greiddu af lánum í góðri trú - frá því að þetta álit lá fyrir - sé ótakmörkuð og því miður kemur það ekki á óvart að ráðherra(r) kannist ekki við neitt. 
mbl.is Upplýsti yfirmenn sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað um afsökunarbeiðni til Íslendinga?

Hefur Hr. Brown fyrir hönd ríkisstjórnar sinnar, komið til Íslands og beðið þjóðina afsökunar fyrir að misnota bresku hryðjuverkalögin október 2008 og spyrða okkur við alræmd hryðjuverkasamtök útí heimi? 

Er ekki eðlilegt að krefjast þess?

Það er engin ástæða til að gleyma eða sætta sig við framgöngu bresku ríkisstjórnarinnar gagnvart Íslendingum á þessum tíma án nokkurra yfirbóta af þeirra hálfu.

 Hef ég kannski misst af einhverju?


mbl.is Axarskaft Browns rétt fyrir kjördag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Óli Valur Steindórsson

Höfundur

Óli Valur Steindórsson
Óli Valur Steindórsson
ekkert merkilegur
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband